Ég heiti Inga Birna og bý í Hafnarfirði ásamt eigimanni, þremur börnum, hundinum Tuma og kisunum Stormi og Bjarti.
Á daginn starfa ég á skrifstofu en á kvöldin og um helgar nýt ég þess að eyða tíma með fjölskyldu og vinum, lesa góðar bækur, elda góðan mat og sinna villiköttum.
Ég er búin að vera sjálfboðaliði hjá Villiköttum í rúmt ár og sinni þrifum og klappi í kotinu nokkrum sinnum í viku.