Ég hef töluverða reynslu úr kvikmyndabransanum, vann í fjölda ára sem klippari á sjónvarpsstöðvum, SkjárSport og RÚV. Hef einnig unnið við bíómyndir og sjónvarpsþætti sem klippari, og DIT. Má þar nefna Gauragang, Svartur á leik, Andaðu eðlilega, Ég man þig, Ligeglad og Víti í Vestmannaeyjum.