Sérkennari við námsver Kópavogsskóla, ráðgjafi hjá Fjólu, félagi fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og þroskaþjálfi hjá YLFA ehf.
Ég er framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá Fjólu félagi fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Er menntuð þroskaþjálfi, grunnskólakennari og umferliskennari. Samskipti eru mér einkar hugleikin því með samskiptum í öllum sínum fjölbreytileika er falinn lykillin að manneskunni, hæfileikum, persónuleika og sjálfræði hennar.