´Ólöf Sverrisdóttir er leikkona, sögukona og skáld. Hún hefur gefið út eina barnabók „Sóla og sólin“ ljóðabókina „Hvítar fjaðrir“ og smásögur í smásagnasafninu Möndulhalli. Einnig hefur hún skrifað fjölda leikrita en barnaleikritin Sköpunarsaga og Frá goðurm til Guðs hafa verið sýnd út um allt land. Ólöf starfaði sem sögukona og var einnig viðburðastjóri hjá Borgarbókasafni og sagði sögur í sögubílnum Æringja. Hún er einnig með ritlistarnámskeið hjá Endurmenntun og hefur verið með leiklistarnámskeið fyrir fullorðna hjá Leiklistarskólanum Opnar dyr sem hún og Ólafur Guðmundsson hafa rekið um árabil.