Framleiðsla á Vínyl plötu á vandaðri nýrri íslenskri tónlist
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Ég er að safna fyrir framleiðslu á nýju plötunni minni Tango for one með hljómsveitinni Limp Kid. En Limp kid er latin jazz trio skipað Andrési Gunnlaugssyni gítarleikara, Matthías Hemstock trommu/slagverksleikara og mér, Haraldi Ægi Guðmundssyni kontrabassaleikara. Platan inniheldur nýjar tónsmíðar undir suður-amerískum áhrifum og var tekin upp af Ómari Guðjónssyni í Studio Hofstaðir snemma árs 2022.
Tango for one er tíunda platan mín, ef taldar eru með tvær plötur í nafni Groundfloor og aðrar sem ég hef samið efni fyrir, að öllu leyti eins og platan Green með Clazz og Embrace plata Hörpu Þorvaldsdóttur. Ég hef gefið út undir margvíslegum hljómsveitarnöfnum og bæði með íslenskum og erlendum listamönnum. Tango for one er þriðja platan sem kemur út á vínyl, aðrir titlar eru á CD.
Andrés Þór hefur á ferli sínum gefið út fjölda hljómplatan undir eigin nafni sem og með öðrum og er mjög virkur í útgáfu á eigin efni. Matthías á einnig langan og góðan feril í bæði poppi, jazzi og latin tónlist og hefur komið að tugum íslenska útgáfa.
Öllum upptökum og hljóðvinnslu Tango for one er að fullu lokið og nú er það bara lokahnykkurinn, að framleiða tónlistina á Vínyl!
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464