Hlýtt og satt is the first short story collection of Icelandic author Davíð Stefánsson. He has previously published three poetry collections and several textbooks for teenagers in the field of the Icelandic language, literature, and cultural literacy. The stories are open and abstract rather then finite and structured; their catalyst being emotions rather then big events. Please send an email to david@ljod.is for further information about the project.
---
Hlýtt og satt er í stuttu máli safn átján texta sem vilja heita smásögur en eru það kannski og kannski ekki. Þetta eru ljóðrænir og opnir textar sem lúta eigin lögmálum og tilfinningalegum þunga.
Hlýtt og satt er langþráð bók sem hefur verið lengi í smíðum, þótt sannur skriðþungi hafi ekki farið af stað hjá mér fyrr en árið 2011. Þá settist ég niður í tvo kalda vetrarmánuði á Skriðuklaustri og tók saman hinar og þessar hugmyndir og hálftexta sem safnast höfðu upp á mörgum árum. Þar sá ég loksins skýrt hvaða þræðir lágu í gegnum textana og hvaða stefnu ég vildi taka sem höfundur annars konar texta en ljóða.
Ég fann fjölina, eins og sagt er.
Það er auðvitað ekki fræðilegur möguleiki að útskýra átján smásögur og hvað þær fást við efnislega. Og þó ... og þó. Sögurnar eiga það allar sameiginlegt að spretta upp úr tilfinningum og hinu smáa í lífinu fremur en heimsviðburðum. Það er í þeim flæði frekar en fastur strúktúr, klifun fremur en meitlun.
Hér eru nokkur lífsýni úr bókinni sem gefa hugmynd um efni og anda:
Textadæmi úr sögunni „Filma gleymir engum skurði, aldrei“
Byrjunin á sögunni „Gítar sem þarf ekki að stilla“:
Efnisyfirlit bókarinnar:
Kápa bókarinnar verður falleg og mjúk og prentuð og þrykkt hjá Reykjavík Letterpress. Hún mun líta nákvæmlega svona út í samhönnun undirritaðs og Brynjólfs Ólasonar:
Af hverju Karolina Fund og eigin útgáfa?
Ég hef hingað til gefið út allar mínar bækur sjálfur, fyrir utan námsbækurnar fyrir Námsgagnastofnun. Sjálfsútgáfa er skemmtilegt og krefjandi ferli sem hefur ótvíræða kosti í för með sér og með þessa reynslu í farteskinu sá ég ekki ástæðu til annars en að halda því áfram.
Samfélagsleg fjármögnun finnst mér líka afar spennandi kostur; ég hef séð mörg glæsileg verkefni ná flugi hjá Karolina Fund og ég vildi einfaldlega prófa nýsköpunina sem felst í fjármögnun af þessu tagi.
Örlítið um sjálfan mig
Ég er bókmenntafræðingur að mennt og hef undanfarin sex ár einbeitt mér að námsbókagerð, eigin skrifum, námskeiðahaldi, ritstjórn, þýðingum og prófarkalestri.
Ég hef gefið út þrjár ljóðabækur og árið 2008 gaf ég út íslensku- og lífsleiknibókina Tvískinna (tviskinna.ljod.is). Hún er nú uppseld en kennd við Menntaskólann við Sund, í Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskóla Austurlands, auk fjölmargra grunnskóla.
Undanfarin ár hef ég haldið ótal námskeið í skapandi skrifum undir merkjum Sköpunarskólans (facebook.com/skopunarskolinn), bæði fyrir börn, fullorðna og kennara, oftast einn en stundum í samstarfi við aðra, þ.m.t. Þorvald Þorsteinsson, Klifið, Myndlistaskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.
Útgefnar bækur
• Neistar – grunnbók í íslensku fyrir 9. bekk (Námsgagnastofnun, 2014)
• Kveikjur – grunnbók í íslensku fyrir 8. bekk (Námsgagnastofnun, 2013)
• Skilaboð móttekin – fræðslukver um auglýsingar (Námsgagnastofnun, 2012)
• Máttur athyglinnar – með Guðna Gunnarssyni (2011)
• Máttur viljans – með Guðna Gunnarssyni (2010)
• Smásagnasmáræði – formáli og kennsluleiðbeiningar (Námsgagnastofnun, 2010)
• Tvískinna – um greiningu, auglýsingar og menningarlæsi (2008)
• Uppstyttur (ljóð, 2003)
• Kveddu mig (ljóð, 1999)
• Orð sem sigra heiminn (ljóð, 1996)
Mynd af höfundi: Ernir Eyjólfsson