ástin er geðveila
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
fortíðarþráhyggja
kæri sáli
gætir þú vinsamlegast
fjarlægt þessa löngun mína
í það sem ekki
stendur lengur til boða?
það er austfjarðaþoka
í huga mér
sem byrgir mér framtíðarsýn
efi
fyrir austan er faðir sem syrgir
og samfélagið gerir ekkert
nema bíða eftir þeim næsta
í borginni eru 200 kranar
sem sveiflast til og frá
í tangódansi við engan
á akureyri snjóar látlaust
yfir stúlku sem liggur
og lætur sig dreyma
á vík er svartur sandur
sem gælir við litlar tær
fótsporin grunn en full af efa
uppi í risi ert svo þú
ég var þar líka
en nú bíð ég eftir þeirri næstu
á meðan dansa ég tangó við engan
en læt mig dreyma
fullur af efa
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464