Þula heldur á alþjóðlegu listahátíðina í Tjanjin í Kína, 26. júlí - 7. águst fyrst íslenskra þjóðlagahópa.
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Þjóðlagasveitin Þula hefur verið valin til þátttöku í alþjóðlegri listahátíð ungmenna í borginni Tianjin í Kína 26.-31. júlí. Það er mikill heiður að vera valin til þátttöku í hátíðinni, en þetta er í annað sinn sem Kínversk-íslenska menningarfélagið hefur milligöngu um að senda íslenska fulltrúa á hátíðina. Listahátíðin í Tianjin er hátíð sem haldin er sameiginlega af Kínverska þjóðarráðinu er vinnur að vináttusamböndum við erlend ríki, Kínverska menningarráðinu og borgarstjórn Tianjin borgar, en þema hátíðarinnar er friður, vinátta og framtíð. Hátíðin er gríðar stór og gert ráð fyrir þátttakendum frá allt að 100 löndum og verður gaman fyrir félagana í Þulu að taka þátt í svo fjölþjóðlegum menningarviðburði og það í Kína.
Þjóðlagasveitin Þula er skipuð 8 ungmennum á aldrinum 16-18 ára úr Tónlistarskóla Kópavogs. Þula er eina þjóðlagasveitin sinnar tegundar þar sem ungmenni iðka flutning á íslenskri þjóðlagatónlist með söng, hljóðfæraleik og dansi sér og öðrum til gleði. Þjóðlagasveitin hefur þegar komið víða við þ. m. t. tók Þula þátt í alþjóðlegu þjóðlagahátíðinni Moonlight á Spáni sumarið 2017, Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði 2016, í Nótunni í Eldborg Hörpu 2016, í Hof á Akureyri, Barnamenningarhátíð í Reykjavík, Ormadögum í Kópavogi og víðar. Hópurinn hefur einnig leitt vinnustofu í þjóðlagatónlist á norrænu þjóðdansa- og þjóðlagamóti í Mosfellsbæ og tekið á móti þjóðlagahópi barna frá Kólumbíu.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464