Hljómsveitin Volta gefur út sína fyrstu plötu
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Volta er búin að fara í hljóðver og taka upp tvö lög, Á nýjan stað og Traveler, einnig er búið að taka upp myndband við lagið Á nýjan stað. Stefnan er svo að gefa út 12 laga plötu árið 2018. Söfnunin snýst um að fjármagna hljóðritun á þessari plötu. Bandið er að æfa stíft og hefur komið talsvert fram síðasta árið. Volta hefur ekki fastmótaða tónlistarstefnu en er líklega í rokk/folk countrybræðing með tilfinningu. Textar eru bæði á íslensku og ensku.
Þess má geta að Heimir og Aðalsteinn eru búnir að spila lengi saman í ýmsum verkefnum, bæði með hljómsveit og líka sem duo. Ingvar og Arnar stukku svo á vagninn og úr varð Volta. Hans kemur svo inn með Hamond orgelið í feb 2017.
Hljómsveitina skipa
Bassi: Aðalsteinn Jóhannsson
Söngur og Kassagítar: Heimir Bjarni Ingimarsson
Trommur: Arnar Scheving
Rafgítar: Ingvar Leví Gunnarsson
Hammond: Hans Friðrik Hilaríus Guðmundsson
Aðalsteinn semur flest lögin á plötunni og mundar bassan af sinni alkunnu snilld.
Heimir á eitthvað af lögum inn á plötunni og syngur eins og vindurinn og strummar kassagítarinn.
Arnar lemur húðirnar og fílar það......
Ingvar plokkar rafgítarinn fimlega.....
Hans sér um að hammondin orgi og lími bandið saman
Traveler var tekið upp á sama tíma og lagið Á nýjan stað og verður á væntanlegri plötu.
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464