Betri sjálfsmynd, aukið sjálfsöryggi og jákvæðni í leik og starfi
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
Af hverju styrkleikakort?
Rannsóknir sýna að þeir sem þekkja styrkleika sína og fá tækifæri á að nýta þá í leik ogstarfi, tengjast tilfinningum sínum betur, eru ánægðari í starfi og öðlast aukna færni í kærleiksríkum mannlegum samskiptum. Þessir einstaklingar ná einnig betri árangri í vinnu og öllu öðru sem þeir taka sér fyrir hendur í lífinu fyrir utan að upplifa mun betri lífsgæði almennt.
Hversu mikilvægt er það að vinna með styrkleika sína?
Þegar einstaklingur uppgötvar og fær tækifæri til að nýta sína náttúrulegu styrkleika reglulega, skapar það jákvæðar tilfinningar og eykur sjálfstraust.
Að vinna með styrkleika eflir þrautseigju og bjartsýni og sjálfkrafa myndast vörn gegn andlegri vanlíðan þar sem athyglin færist yfir á það sem manneskjan getur og er góð í.
Styrkleikakort skapa meiri gleði á vinnustaðnum og færni einstaklinga nýtist betur
Að vinna með styrkleikakort veitir einstaklingum og hópum tæki og tól í verkfærakistuna til að bæta vinnuumhverfi og greina eigin styrkleika og annarra áfjölbreytilegan hátt. Kortin hjálpa fólki að nýta styrkleika sína betur og á marga ólíka vegu. Reynslan sýnir að þar sem unnið er með styrkleika opnast nýir möguleikar og tækifæri í lífi og starfi, jafnt fyrir einstaklinga sem hópa.
Gegn einelti
Það sem háir einstaklingum sem beita aðra andlegu ofbeldi (leggjamanneskjur í einelti) er að þeir þjást af vanlíðan, lélegri sjálfsmynd og eru ekki meðvitaðir um styrkleika sína. Óöryggið birtist gjarnan í vanhæfni til að greina á milli heilbrigðra og óheilbrigðra samskipta og þessir aðilar menga vinnustaði með neikvæðni og yfirgangi.
Betri sjálfsmynd
Rannsóknir Jákvæðu Sálfræðinnar sýna að einstaklingar sem þekkja og nýta styrkleika sína öðlast meira sjálfsöryggi. Þeir eru jákvæðari í starfi og eiga gjöfulli samskipti við aðra. Einstaklingar sem öðlast vitneskju um t.d. hvað drífur þá áfram, fyllast jákvæðri orku og vita hver gildin í lífinu eru. Það er mikil gjöf að þekkja hverjir manns náttúrulegu hæfileikar eru og hvaða jákvæðu persónueinkenni prýða mann.
Á þeim vinnustöðum þar sem styrkleikakort hafa verið notuð til uppbyggingar og mannræktar hafa samskipti gjörbreyst og andrúmsloft batnað verulega og einelti víða verið útrýmt.
Fyrir hverja eru styrkleikakortin?
Þau eru fyrir alla. Fagaðila jafnt sem leikmenn: Mannauðsstjóra, starfsmannastjóra,sálfræðinga, geðlækna, meðferðaraðila, kennara, leiðbeinendur, presta, stjórnendur og starfsfólk svo eitthvað sé nefnt.
Fólkúr öllum stéttum og af öllum trúarbrögðum getur nýtt sér styrkleikakortin og þau eru sameinandi afl og gleðjandi verkfæri fyrir stórar og litlar fjölskyldur, stórt og lítið fólk, eldri og yngri borgara, sem sagt: ALLA!
Um Eddu Björgvins
Fylgdu okkur á FACEBOOK HÉR
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464