Útgáfa á geisladiski með einleik Árna Kristjánssonar
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
"Árni var stórbrotinn listamaður og þegar best lét var hann innblásinn og náði hæstu hæðum í túlkun sinni. Það hríslaðist oft um mann þegar hann komst á flug. Blæbrigðaríkur söngur laglínunnar, þéttleiki hljómsins og litauðgi milliraddanna var undraverð. Hann var ekki hinn glitrandi virtúós heldur skáldið sem sat við hljóðfærið, og hann kunni að láta þögnina tala.
Hans menn voru Beethoven og Chopin og í verkum þeirra er hann minnisstæðastur."
Jón Nordal
Árna Kristjánsson (1906 - 2003) píanóleikara og kennara er í raun óþarfi að kynna sérstaklega fyrir þeim sem fylgst hafa með tónlistarlífi hér á landi á liðinni öld. Árni var einn merkasti tónlistarmaður okkar, mikilsvirtur kennari auk þess sem eftir hann liggja skrif af ýmsu tagi um tónlist og tónskáld. Hann var einnig virkur í félagsmálum tónlistarmanna; einn af stofnendum Félags íslenskra tónlistarmanna og var formaður þess um skeið og formaður tónlistarnefndar NOMUS. Árni sat einnig í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Bandalags íslenskra listamanna. Árni var um árabil Tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins.
"Auk kennarans Árna átti ég þess kost að heyra hann á tónleikapallinum, á einleikstónleikum, í píanókonsertum og kammertónlist. Ekki ætla ég að hætta mér út í að lýsa leik hans nánar, en vil samt ekki sleppa því að nefna, að þar birtist næm og djúp túlkun, streymandi eins og af sjálfu sér, áreynslulaus og eðlileg."
Halldór Haraldsson
Efnisskrá geisladisksins:
W. A. Mozart - Sónata í C dúr KV 545
Hljr. Skúlagötu 4 14. júlí, ártal vantar. Frumflutt 14. júlí 1961.
L. v. Beethoven - Sónata í E dúr op. 109
Hljr. Í Landssímahúsinu við Austurvöll 1947. Frumflutningur óviss.
Fr. Chopin - Prelúdíur op. 28 nr. 1 C-dúr, 4 e-moll, 5 D-dúr, 7 A-dúr, 8 fís-moll, 13 Fís-dúr, 14 es-moll, 15 Des-dúr, 17As-dúr, 19 Es-dúr, 20 c-moll
Berceuse Des-dúr op. 57
Næturljóð cís-moll op. 27 nr. 1.
Hljóðritað 22. nóvember 1983 (stúdíó 1, Skúlagötu 4) og 11.desember 1983 (Háskólabíó).
Karolina Fund ehf © 2025 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464 | Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Iceland