Olga’s Icelandic Summer Tour
To add milestones and tasks to your plan, please send them via e-mail to info@karolinafund.com. Tell us which tasks you have already finished (checked) and which ones are left.
Showing what the plan is for your project helps build trust with potential backers.
--- Icelandic text below ---
The Idea
Olga wants to come to Iceland again this summer! Our one true love is fun, light-hearted, and totally fantabulous singing, and we want to help grow the already rich palette of Icelandic music as much as we possibly can.
Last summer, we visited Iceland and had an amazing experience. The audiences were incredibly warm and enthusiastic, the mountains were mountainous, and the food was meaty. This summer, we would love to sing for you again.
We need your help to get it done! Your donation will bring Olga back to Iceland.
The Goals
* Reach twice as many people as last year, that is, at least 1000 people, 0.3% of Iceland!
* Produce a CD to bring with us, to leave behind a more permanent memory of our music.
* Bring a videographer with us to document the musical journey.
* Perform for more Olga’s than last year, so over 30. :)
The Concerts
June 26 - Thursday - 20:00 – Tjarnarborg, Ólafsfjörður
June 29 - Sunday - 20:00 – Hvollinn, Hvolsvöllur
July 1 - Tuesday - 20:00 – Langholtskirkja, Reykjavík
July 2 - Wednesday - 20:30 – Bláa kirkjan, Seyðisfjörður
July 4 - Friday - 20:00 – Hafnarkirkja, Höfn í Hornafirði
The Future
To us, Olga is a musical garden that we sustain and water every time we perform. We have roots in Iceland, and we have every intention of coming back and back again to continue growing what we have planted. But we need your help! :)
Who are We
Olga Vocal Ensemble is a new ensemble based in the Netherlands – but with undoubtedly international roots. Olga was founded in 2012 at the Utrecht Conservatory. Our repertoire covers five centuries and more of musical joy, from Renaissance to barbershop, and our aim is to captivate audiences with unbridled fun, drama, enthusiasm, and simply beautiful singing.
Heyr himna smiður by the composer Kolbeinn Tumason. This tune was arranged by Þorkell Sigurbjörnsson more than 700 years after Kolbeinn composed the song. This is from our great recording session in Luxembourg with Diddi fiðla! With your help we will be releasing our debut CD in a few weeks. Filmed on an ipad and we just can't wait to hear what it sounds like on the actual recording. Stay tuned!
About the singers
Bjarni Guðmundsson, tenor, grew up in the countryside of Iceland and spent a lot of time working on his grandparents’ farm. His greatest wish is to become an explorer. Sometimes he says, “I’d like to build a cabin in the forest and live there!” His favorite thing is to fish and to eat the fish for dinner.
Jonathan Ploeg, tenor, was born into a musical family with five children. He played the oboe for nine years but gradually found his way into singing. Jonathan also works as a cheesemonger at a market in Haarlem. Before studying, he worked as a handyman. He likes to travel the world and see distant countries.
Gulian van Nierop, baritone, has obtained a bachelor’s degree in Biomedical Sciences. Gulian likes to sleep in, play chess, and read. He strives to be vegetarian, but he’s a sucker for Icelandic lamb (served with “shoe” sauce, of course).
Pétur Oddbergur Heimisson, bass-baritone, likes sports and knitting. As a kid, he couldn’t stay still even for a minute, so he trained in several sports like skiing, badminton, football, and athletics. He currently plays for two futsal teams in Utrecht.
Philip Barkhudarov, bass, is originally from Moscow, grew up in New Mexico and holds a bachelor degree in physics and a masters degree in computer science. In his spare time, Philip is always eating tasty things, especially if they’re spicy. He also hopes to one day have a whole room of his house devoted to Lego.
Hugmyndin
Sönghópinn Olgu langar að koma aftur til Íslands í sumar! Við elskum að skemmta okkur og öðrum með skemmtilegum og einlægum söng í vönduðum fluttningi sem hittir beint í hjartastað. Við viljum taka þátt í að efla enn frekar það mikla tónlistarlíf sem kraumar í íslenskri menningu.
Við vorum himinlifandi með tónleikaferðalagið síðasta sumar. Móttökurnar voru framar vonum, undirtektir tónleikagesta voru mjög góðar og hvetjandi. Fjöllin, firðirnir og fuglarnir veittu okkur innblástur svo ekki sé talað um matinn sem hélt okkur gangandi í gegnum ferðina. Þess vegna viljum koma aftur í sumar og syngja meira.
Við þurfum ykkar hjálp til að láta þetta verða að veruleika! Ykkar framlag kemur Olgu aftur til Íslands.
Markmiðin
* Tvöfalda áheyrendafjölda frá síðasta ári, það þýðir að minnsta kosti 1000 gestir. Sem gerir 0,3% Íslendinga!
* Gefa út geisladisk til þess að taka með okkur. Þannig að við getum gert upplifun tónleikagesta á tónlistinni okkar enn eftirminnilegri!
* Fá með okkur í för kvikmyndatökumann sem mun festa ferðalagið á filmu.
* Fá fleiri Olgur á tónleika en í fyrra, sem sagt fleiri en 30!
Tónleikarnir
26. júní – fimmtudagur – 20:00 – í Tjarnarborg á Ólafsfirði
29. júní – sunnudagur – 20:00 – í Hvolnum á Hvolsvelli
1. júlí – þriðjudagur – 20:00 – í Langholtskirkju í Reykjavík
2. júlí – miðvikudagur – 20:30 – í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði
4. júlí – föstudagur – 20:00 – í Hafnarkirkja á Höfn í Hornafirði
Framtíðin
Fyrir okkur er Olga garður tónlistar sem við ræktum í hvert skipti sem við höldum tónleika. Við höfum sterka tengingu við Ísland og viljum gera það að reglulegum viðburði að halda tónleika þar. Þannig höldum við áfram að rækta það sem við sáum. En við þurfum á þinni hjálp að halda.
Hverjir erum við?
Sönghópurinn Olga er nýr og ferskur hópur sem hefur aðsetur í Hollandi - alþjóðlegar rætur leyna sér ekki. Olga var stofnuð árið 2012 í Tónlistarháskólanum í Utrecht. Við syngjum allt án undirleiks og efnisskrá okkar spannar fimm aldir, allt frá endurreisninni til rakarkvartetta og frá þjóðlögum til sönglaga. Við leggjum upp með að færa tónlistina nær áheyrendum í leikrænni tjáningu og einlægum söng með vandaðri og metnaðarfullri tónlistarlegri túlkun.
Flug, leiga á tónleikasölum, ferðalög, matur, æfingar og gistipláss auk fleiri kostnaðarliða verða ekki að veruleika nema með stuðningi frá ykkur kæru vinir og vandamenn. Ykkar framlag kemur Olgu aftur til Íslands!
Upplýsingar um söngvarana:
Bjarni Guðmundsson, tenór, ólst upp á Hellu og eyddi miklum tíma í að hjálpa afa sínum og ömmu við búskapinn á bóndabæ þeirra hjóna. Hans helsta ósk í lífinu er að gerast landkönnuður. Stundum segir hann ,,mig langar að byggja skála í skóginum og búa þar.” Að veiða sér fisk til matar er í miklu uppáhaldi hjá honum
Jonathan Ploeg, tenór, fæddist inn í tónlisarfjölskyldu. Hann lék á óbó í alls níu ár en á endanum snéri hann sér að söngnum. Jonathan selur osta á markaði í Harleem. Áður en hann hóf söngnám var hann “altmuligmaður” eins og maður segir á góðri dönsku. Jonathan finnst spennandi að leggja í ferðalög til fjarlægra landa.
Gulian van Nierop, baritón, lauk bakkelár gráðu í lífeindafræði áður en hann hóf söngnám. Honum finnst gott að sofa út, tefla og lesa. Hann er að berjast við að gerast grænmetisæta en hann á í vandræðum með að standast íslenska lambið sem er með því betra sem hann leggur sér til munns.
Pétur Oddbergur Heimisson, bass baritón, finnst gaman að stunda íþróttir og prjóna. Þegar hann var yngri gat hann ekki setið kyrr í mínútu þannig að hann leiddist út í íþróttir og fór að æfa skíði, badminton, fótbolta og frjálsar íþróttir. Pétur spilar fútsal (innanhúss fótbolti) með tveimur liðum í Utrecht.
Estimated delivery time for pledges?
July 2014
Karolina Fund ehf © 2024 | Kt: 460712-1570 | VAT: 111464